Náttúruvörur úr íslenskum lækningajurtum
SagaMedica sérhæfir sig í rannsóknum á íslenskum lækningajurtum og framleiðslu hágæðanáttúruvara úr þeim.
Við höfum rannsakað um helming þeirra áttatíu lækningajurta sem fyrirfinnast í íslenskri náttúru. Ætihvönn, sem nefnd er Angelica archangelica á latínu, er ein merkilegasta lækningajurt Íslandssögunnar og vörur okkar byggjast að miklu leyti á henni. Rannsóknir hafa leitt í ljós mikinn fjölda lífvirkra efna bæði í laufum og fræjum plöntunnar.
Þessi efni hafa áhugaverða eiginleika hvað varðar ýmsa sjúkdóma, eins og tíð þvaglát, veirusýkingar, kvíða og minnistap.












