Voxis
Notað við særindum í hálsi

Setja í körfu ISK 385
1 poki / 80 grömm

Voxis hálstöflur eru unnar úr laufum íslenskrar ætihvannar og njóta geysimikilla vinsælda.  Við heyrum reglulega frá fólki sem þykir varan hjálpa sér ef það verður vart við særindi í hálsi og munni.

Veiruvirkni

Voxis inniheldur svokallaða flavónóíða, en rannsóknir sýna að slík efni geta unnið gegn veirum.

Heimild: Isolation and characterization of an antiviral flavonoid from Waldsteinia fragarioides. Abou-Karam M, Shier WT. J. Nat. Prod. 55; 1525-1527, 1992.

Töflurnar eru íslensk framleiðsla, framleiddar úr hreinu íslensku hráefni. Þær innihalda mentól og eucalyptus sem gefa frískandi bragð.

Nafnið táknar hina íslensku rödd, en „vox“ þýðir „rödd“ á latínu og „is“ er landakóði Íslands.

Voxis er fáanlegt í heilsuvöruverslunum, apótekum, stórmörkuðum og í Fríhöfninni. Einnig fáanlegt í vefverslun SagaMedica.

Algengar spurningar um Voxis