SagaPro Notað við tíðum þvaglátum
Setja í körfu
ISK 2.19040 töflur / 40 dagar
SagaPro er unnið úr laufum íslenskrar ætihvannar og er ein mest selda náttúruvara á Íslandi.
SagaPro er mikið notað af karlmönnum sem þjást af tíðum næturþvaglátum vegna góðkynja stækkunar í blöðruhálskirtli. Fólki með ofvirka blöðru hefur einnig þótt SagaPro hjálpa sér. Klínísk rannsókn á SagaPro stendur yfir sem vonir standa til að endurspegli góða reynslu viðskiptavina okkar af vörunni.
Rannsóknir á lífvirkum efnum í hvannarlaufi
Ætihvannarlauf innihalda svokallaða flavónóíða. Rannsóknir benda til þess að slík efni geti haft slakandi áhrif á sléttar vöðvafrumur, eins og þær sem fyrirfinnast í þvagrás og blöðru. Virkni flavónóíða er talin hindra samdrátt í blöðru og þvagrás, en slíkur samdráttur getur átt þátt í aukinni tíðni þvagláta.
Heimildir:
Interstitial Cystitis and Bladder Research:Progress and Future Directions. Yoshimura N, Chancellor MB. Rev. Urol. 2001; 3: 146-151.
Response of the isolated guinea pig bladder to exogenous and endogenous leukotrienes. Bjorling DE, Saban MR, Bruskewitz RC, Saban R. J. Urol. 1994; 152: 1281-1286.
Leukotrienes: possible mediators in bronchial asthma. Piper PJ. Eur. J. Respir. Dis. Suppl. 1983; 129: 45-64.
Hafa ber í huga að SagaPro er ekki lyf og kemur ekki í stað lyfja.
Tíð þvaglát
Tíð þvaglát eru algeng og geta átt sér margar ólíkar orsakir:
- Góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli
- Bólga í blöðruhálskirtli
- Ofvirk blaðra
- Blöðrubólga
- Aðrar, sjaldgæfari orsakir
Stækkun í blöðruhálskirtli er oftast góðkynja, en getur einnig verið krabbamein. Mikilvægt er að leita til læknis ef þvaglát eru tíð, þar sem orsakir geta verið ólíkar. Á það sérstaklega við um karlmenn.
SagaPro er fáanlegt í heilsuvöruverslunum, apótekum, stórmörkuðum og Fríhöfninni. Einnig fáanlegt í vefverslun SagaMedica.
Algengar spurningar um SagaPro







