Blöðruhálskirtill

Blöðruhálskirtillinn er hluti af kynfærum karla. Konur eru því ekki með blöðruhálskirtil. Kirtillinn situr fyrir neðan þvagblöðruna og seytir vökva sem blandast sæðinu, en sá vökvi er um 25-30% af rúmmáli sáðláts og eilítið basískur. Það hjálpar til að verja sáðfrumur fyrir hærra sýrustigi í leggöngum1.
Góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli
Algengt er að karlmenn á miðjum aldri hafi stækkaðan blöðruhálskirtil. Slíkt ástand er nokkuð algengt uppúr fimmtugu, en hrjáir svo afskaplega marga karlmenn eftir það. Þetta er góðkynja stækkun og er ekki krabbamein.
Þegar um góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli er að ræða vex nýr vefur innan úr kirtlinum og klemmir þvagrásina saman þar sem hún gengur úr þvagblöðrunni. Þessi klemma veldur því að erfitt getur verið að hafa þvaglát.2 Eðli málsins samkvæmt getur stækkaður blöðruhálskirtill því haft mikil óþægindi í för með sér.
Næturþvaglát
Karlmenn með stækkaðan blöðruhálskirtil þjást margir af tíðum næturþvaglátum. Ætihvannarlauf innihalda efni sem rannsóknir sýna að geti slakað á sléttum vöðvafrumum, eins og þeim sem finnast í blöðru og þvagrás. SagaPro er framleitt úr ætihvannarlaufum og er vinsælt hjá körlum sem þjást af tíðum næturþvaglátum. Slíkt vandamál getur þó átt margs kyns orsakir og mikilvægt er fyrir fólk, sérstaklega karlmenn, að leita til læknis ef það þjáist af tíðum þvaglátum.

Bólga í blöðruhálskirtli
Bólga í blöðruhálskirtli getur stafað af nokkrum ástæðum og er miserfitt að meðhöndla. Við sumum tegundum slíkrar bólgu eru gefin sýklalyf, en við öðrum tegundum þarf að nota önnur úrræði. Í 90-95% tilvika er um að ræða króníska bólgu í blöðruhálskirtli sem ekki stafar af bakteríum. Við henni er því ekki hægt að nota sýklalyf.3
Krabbamein í blöðruhálskirtli
Hér eru gagnlegar upplýsingar á ensku um krabbamein í blöðruhálskirtli, ásamt lista af atriðum sem gott er að hafa í huga við ákvarðanatöku í samráði við lækni. Að lokum er hér spurningalisti sem hægt er að hafa í huga þegar rætt er við lækni. Taka ber mið af því að þessar upplýsingar eru ekki úr íslenska heilbrigðiskerfinu.
Upplýsingar um krabbamein í blöðruhálskirtli á íslensku frá Evrópusamtökum þvagfæraskurðlækna.
Heimildir
1 A Practical Treatise on the Sexual Disorders of Men. Carleton, Bukk G. (1898). Boericke, Runyon & Ernesty. pp. 105. ISBN 1436745853.
2 Úr bókinni Dr. Walsh's Guide to Surviving Prostate Cancer, á heimasíðu Prostate Cancer Foundation.
3 Prostatitis/chronic pelvic pain syndrome. Habermacher GM, Chason JT, Schaeffer AJ (2006). Annu. Rev. Med. 57: 195–206.







